Karlmennskan
Gagnrýnið og kynjað sjónarhorn á völd og viðmið.
Bakhjarlar fjármagna meðal annars hlaðvarpið Karlmennskan. Þú getur verið eitt þeirra:
https://www.karlmennskan.is/styrkja
Episodes

Thursday Mar 12, 2026
Thursday Mar 12, 2026
Myndlistamaðurinn og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er á sjötugsaldri en er talinn af sumum allt of woke. Hallgrímur var á sextugsaldri þegar hann eignaðist barn með konu sinni en árinu áður hafði hann orðið afi. Við ræðum woke og histeríska umræðuhefð, „sjúkdóm“ sem herjar á karlmenn og dregur þá til andlegs dauða, pabbafa hlutverkið og rifjum upp viðbrögð menningarelítunnar þegar Hallgrímur opnaði sig um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir.
Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við útgáfu á hlaðvarpinu Karlmennskan. Þú getur verið einn af þeim.
karlmennskan.is/styrkja

Wednesday Mar 25, 2026
Wednesday Mar 25, 2026
Traust til Þjóðkirkjunnar fer stigvaxandi og jafnvel róttækustu femínistar landsins hafa trú á biskupi Íslands. Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands vill vera sýnileg og gera kirkjuna að jákvæðu afli í samfélaginu. Biskupsmálið, rannsóknarskýrslan og mistök kirkjunnar koma til umræðu. Við ræðum aukna kirkjusókn ungs fólks, íhaldssemi, kynferðisofbeldi, Biblíuna, trú og mennsku. Hvers konar karlmennsku hefur kirkjan ungum strákum upp á að bjóða og hvaða arfleifð vill biskupinn Guðrún skilja eftir sig?
Viðmælandi: Guðrún Karls Helgudóttir
Tekið upp í mars 2026
Bakhjarlar Karlmennskunnar styðja við framleiðslu á hlaðvarpinu.

Monday Mar 30, 2026
Monday Mar 30, 2026
„Ég vakna á endurlífgunardeild fyrir tveimur árum og eftir það langar mig að stíga út úr þessu.“ segir Sara Gabríela. Við áttum börn á sama leikskóla og höfðum nokkrum sinnum spjallað lítillega. Þegar ég rakst á Söru Gabríelu í gegnum algoriðmann á TikTok kannaðist ég við nafnið en alls ekki manneskjuna. Þessi þögla, hlédræga og feimna kona var svo róttæk, beinskeytt og hæðin að ég þekkti hana ekki.
Ég las á milli línanna að á bak við óheftu tjáninguna væri reiði yfir einhverju sem virðist fá að viðgangast óáreitt. Eitthvað sem tengist kynferðisbrotum, spiritualísku umhverfi og börnum. En ég áttaði mig ekki á því hverju Sara Gabríela var nákvæmlega að ýja að.
Þetta viðtal er rosalegt. Ég set risa TRIGGER WARNING á hlustunina því Sara talar um sjálfsvígstilraun, ítrekuð kynferðisbrot, barnaníð, morðhótanir og viðbjóð sem virðist fá að þrífast innan ákveðins kúltúrs eða költs á Íslandi. Sara Gabríela er komin með nóg af þöggun og því að vera þvinguð til að „haga sér“. Hún „trollar“ á TikTok og er að skrifa bók samhliða því sem hún hlúir að sjálfri sér og styður dóttur sína.
Viðmælandi: Sara Gabríela
Tekið upp í mars 2026.

Wednesday Apr 08, 2026
Wednesday Apr 08, 2026
Börkur Reykjalín Brynjarsson er verkfræðingur sem rak fjölskyldufyrirtækið en brann út, varð fyrir kulnun, greindist með ofsakvíða og þunglyndi. Í kjölfarið fór hann að prufa leiðir til að ávaxta peninginn sem varð eftir við lokun fyrirtækisins en endaði á að festast í vítahring spilarfíknar. Þögnin, skömmin, sektarkenndin og vonleysið rændi hann næstum því lífsviljanum. Börkur leitaði til Píeta samtakanna og loks í meðferð við spilafíkn.
Börkur er ennþá að glíma við afleiðingar spilafíkninnar og er að vinna úr sínum málum en finnst mikilvægt að tala um hlutina í stað þess að byrgja þá inni og fela. Kaldhæðnislega eða sem betur fer hefur Börkur kynnst starfi Píeta samtakanna en hann hefur skipulagt árlegt hlaup til styrktar og vitundarvakningar um mikilvægi samtakanna í rúm sex ár - löngu áður en hann sjálfur þurfti á þeim að halda. Næsta hlaup fer fram laugardaginn 11. apríl við Vífilsstaðavatn, í Hólmavík, Dalvík og Fáskrúðsfirði.
Viðmælandi: Börkur Reykjalín Brynjarsson
Tekið upp 8. apríl 2026

Monday Apr 13, 2026
Monday Apr 13, 2026
Þórunn Sveinbjarnardóttir er forseti Alþingis og á langan pólitískan feril að baki, þótt hún sé einungis sextug. Hún kom að stofnun Röskvu 1988, sameiningu Alþýðubandalagsins, Kvennalistans og Alþýðuflokksins í Samfylkinguna og hún var umhverfisráðherra í miðju hruninu 2007–2009. Þórunn er femínisti og hefur lengi barist fyrir kvenréttindum og mannréttindum. Þrátt fyrir reynslu af sameiningu og þátttöku í ýmsum framfaramálum þá hefur gengið á ýmsu á Alþingi og innan Samfylkingarinnar. Við ræðum pólitíska fortíð og nútíð, hægrið, rasisma, útlendingamál, femínisma, feðraveldi, peninga og flótta kanóna úr Samfylkingunni.
Viðmælandi: Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis
Tekið upp 10. apríl 2026.
Þátturinn er í boði bakhjarla Karlmennskunnar

Tuesday Apr 28, 2026
Tuesday Apr 28, 2026
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir er félagsfræðingur að mennt og hefur talað fyrir líkamsvirðingu undanfarinn áratug. Hún vill að heilbrigðisyfirvöld leggi áherslu á þyngdarhlutlausa nálgun að bættri heilsu í stað þyngdarmiðaðrar. Tara Margrét þurfti að draga sig í hlé úr opinberri umræðu vegna álags eftir ítrekaðar hótanir, niðurlægingar og viðbjóð sem virðist fylgifiskur þess að gagnrýna viðtekin viðmið. Tara Margrét rauf nýverið fjögurra ára þögn þegar hún sendi inn umsögn um þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn offitu. Tara Margrét segir að öll sjónarmið um þyngdarhlutlausa nálgun hafi verið virt að vettugi í þeirri tillögu.
Í þessum þætti útskýrir Tara Margrét hvað þyngdarhlutlaus nálgun þýðir, hvers vegna orðræða og aðgerðir með áherslu á þyngd valda fólki skaða, hvers vegna heilsa og þyngd fara ekki endilega saman og reynslu Töru Margrétar af samskiptum við heilbrigðisyfirvöld.
Viðmælandi: Tara Margrét Vilhjálmsdóttir
Tekið upp: 20. mars 2026.
Tipsaðu 390 krónum fyrir þáttinn
eða vertu bakhjarl og tipsaðu mánaðarlega á karlmennskan.is/styrkja

20 hours ago
20 hours ago
„Við sem samfélag [þurfum] að koma út úr skápnum með þetta til þess að við getum dregið úr ofbeldi í nánum hinsegin samböndum og skömminni sem því fylgir. Óttinn við bakslag er eðlilegur, en Pride er uppreisn og við látum ekki ótta stöðva okkur […]“
Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir kynjafræðingur og kennari gerði meistararannsókn um ofbeldi í nánum hinsegin samböndum. Hún segir frá rannsókn sinni, því hvernig hinsegin þolendur eru oft teknir út fyrir sviga í rannsóknum á ofbeldi og hversu flókið það getur verið að tala um ofbeldi innan jaðarsetts samfélags á tímum bakslags.
Við förum meðal annars inn á þögnina, skömmina, vænta fordóma, valdatengsl innan hinsegin samfélagsins, félagslegar og heilsufarslegar afleiðingar ofbeldis og þá mýtu að hinsegin sambönd séu einhvern veginn alltaf falleg, heilnæm og laus við ofbeldi.
Viðmælandi: Ingibjörg Andrea Hallgrímsdóttir
Tekið upp 26. maí 2026





